Lygi.. svik.. og fleiri vanmetnir hlutar lífs.. Góða kvöldið (nótt)!

Þannig er mál með vexti að ég er algjör Sims og Sápuóperufíkill..
Og finnst mér fátt betra að setja Kenny G á fóninn, Poppa mér 1 stk popppoka, blanda vænt djúsglas, koma mér vel fyrir undir teppi við tölvuna og hefjast handa við að spila sims..

Flest öll kvöld fara í það hjá mér..

Hef prufað alls kyns fjölskyldumunstur, þessa týpísku uptown fjölskyldu, og svo algjöra west-side slums fjölskyldu..

En allt kemur fyrir ekki, allar eru þær jafn heiðarlegar..

Þar sem sápuóperur eru hin ástríða mín, vonast ég eftir að geta komið smá drama í gang í Sims hjá mér, en allt kemur fyrir ekki..

Leikurinn er alveg laus við hjákonur, lausaleikiskróga, og sóðaleg samkynhneigð ástarsambönd með hreingerningarkonunni í leikherbergi barnanna…

Veit ekki hvort það eru bara mínir sims-verjar sem eru svona heiðarlegir eða hvort þetta virðist vera almennt um þessa kommúnu..

þess má kannski geta að ég er bara með 1 aukapakka, og það er sims on holiday :o

En hvað finnst ykkur? Ættu simsverjar að láta stjórnast af sínu dýrslega eðli eins og við mennirnir?

Eða viljum við láta börnin okkar, sem virðast oft halda að það að vera Sims, sé eins og að verða fullkominn.. Að heimurinn sé eigi hverfulur og heiðarleg og indæl manneskja sé á hverju horni?

Þegar þær eru svo vandfundnar :o

Þess má einnig geta, að ég er ekki nein svikamanneskja sem er búin að plana að halda framhjá manninum minum og vanrækja börnin min.. finnst bara það ætti að færa veruleikann aðeins betur inní þennan leik..

Er ekki nógu fróð um sims til að geta tjáð mig um það mál, en er til eitthver lyga-svika-ósiðlegrakynmaka-aukapakki?

Takk fyrir, og lifið heil!