Ég var í Sims í morgun og ákvað að búa til save með einum kalli. Þessi kall hét Fred Moorleaf. Ég gerði smá svindl í byrjun til að ég gæti haft húsið frekar flott og svona. Ég fór að leita mér að starfi og eina starfið í dagblaðinu sem ég skoðaði var Subway Musician. Ég tók það og fékk stöðuhækkun fyrsta daginn. Þá var ég byrjaður að stilla píanó. Svo eftir nokkra daga og nokkur skill point var ég byjaður að syngja í brúðkaupum. Þá ákvað ég að fara niður í bæ og fá mér 2 hunda af sitthvoru kyninu. Þeir hétu Daredevil (m) og Senjorita (f). Þeir urðu strax voða góðir vinir og eignuðust hvolp saman eftir nokkra daga. Hvolpurinn var alveg eins og mamman og fékk nafnið Anasta. Þá var ég nú orðinn frekar auralítill og þurfti að fá mér nýja vinnu enda skrópaði ég nokkuð oft og fékk ekki góð meðmæli frá brúðhjónum enda líka alveg rammfalskur :). Ég byrjaði alveg á botninum og fékk starf sem uppvaskari á veitingastað. Ég var bara 2 daga í þeirri vinnu og fékk stöðuhækkun, er byrjaður að vinna í ,,Drive By" lúgu. Hundarnir mínir hafa það gott og una sér vel við að hlanda um allt hús og róta í garðinum. Kallinn minn er ekki mjög rómantískur náungi en hver veit nema að hann fái einhverja kerlingu til að flytja inn??