Ég bjó til fjölskyldu með einni konu og stelpu.
Svo flutti ég með þær og bjó til ágætis hús og setti
sundlaug í garðinn og sona.
þá var ég eitthvað að dandalast með konuna og var með
free will á og stelpan fór í sund.
Þá dó stelpan þar sem ég gleymdi handriðum til að komast uppúr.
Ég fékk mér hund og var að reyna að eignast kall og var bara að
hugsa um það og hundurinn dó því ég gaf honum ekki
að borða :'(
Ég fékk mér annann hund og eignaðist mann eftir þetta.
Maðurinn var svolítið skrítinn þar sem ég lét hann elda
3 sinnum í röð og alltaf kviknaði í.
Einu sinni labbaði hann líka um nakinn :S og
nokkrum sinnum vantaði fötin, bara haus og hendur áonum
Svo fór ég að búa til svona “lyf” sem varð rautt
og einhver kall sem ég hafði aldrei séð áður varð
ástfanginn af henni og þau giftust líka.
Þá hringdi síminn og spurði hvort við vildum adopta barni
og við sögðum já og það varð strákur.
Á meðan eignaðist einn kallinn góðan vin sem fór því miður
að synda og dó þar sem ég var enn ekki búin að setja
handriðin á.
Þá flutti ég en þetta var svo pirrandi hús að ég flutti
aftur í sama gamla húsið.
Fyrri maðurinn minn fór líka í sund og dó þar.
ÞÁ setti ég handriði á og enginn hefur drepist síðan.
Ég elskaig