Slæmt, Slæmt mjög slæmt Ég á Sims Deluxe og hef búið til milljón fjölskyldur. En í gær gerðist eitt sem aldrei hefur gerst áður! Sko, ég gerði svona par, sem hétu Clark Kent og Lana Kent sem voru mjög ung(Í huganum mínum :)) Og ég gerði ógeðslega stórt hús á þrem hæðum handa þeim og var voðalega lengi að byggja það.En síðan eignuðust þau strax barn, og ég læsti konuna inní herbergi til að ala upp barnið(Til að hún væri ekki alltaf að hlaupa um húsið, þá er meiri hætta á að konan tæki barnið) En síðan fór hún að elda í þessu litla herbergi, og það kviknaði í.Hún brann til dauða en barnið bjargaðist…Þannig ég læsti manninn(Clark) inní herbergi og hann var sofandi og vildi ekki vakna þegar barnið fór að gráta, þannig konan kom og tók litla drenginn hans :( Þannig ég leyfði honum bara að vera um allt húsið, en þá fór hann að elda, og það kviknaði í og hann brann til dauða. Hefur þetta gerst hjá ykkur eða var ég bara mjög óheppin?