Ég ákvað að framkvæma tilraun í Sims sem fólst í því að gera fjölskyldu af átta börnum og láta þau heima í húsi með fullt af tölvuleikjum, dóti og allskonar rugli sem börnin gátu skemmt sér við.
Þetta byrjaði allt saman voðalega rólega og börnin skemmtu sér konunglega. Svo kom fyrsta vandamálið, þau voru ekki að borða nóg. Ég byrjaði að neyða börnin til að hætta að leika sér og byrja að borða meira og þau drógust niður í þunglyndi. Þetta var slæmt því þau vildu ekki læra heima lengur og sum þeirra vildu ekki einu sinni mæta í skólann svo ég keypti handa þeim flugeldasett. Við þetta glöddust þau og þau hreinlega vildu ekki hætta að skjóta. Flugeldarnir lentu hægri vinstri og voru oft nálægt því að drepa einhvern. Svo gerðist það að einn þeirra lenti í nærliggjandi leikgrind og drap krakkann sem lék sér þar og annar lenti í húsinu. Eldurinn logaði og krakkaóp heyrðust allsstaðar. Nágranni krakkanna kom hlaupandi til bjargar en fékk flugeld í sig við að reyna að slökkva í verðandi hræi eins krakkans. Að sjálfsögðu dó hann líka.
Inni í húsinu brann allt sem gat brunnið vegna flugelda sem hafði verið skotið í það og inni í því og svo hafði einhver krakkinn drekkt sér í sundlauginni vegna ofþreytu eftir allan ærslaganginn.
Allt þetta endaði á því að aðeins einn krakki var eftir og hann var fallinn í skóla. Allt hefði endað vel fyrir honum og hann hefði farið í herskóla hefði stiginn ekki verið brunninn svo hann komst ekki út. Ég gat ekki komið fyrir öðrum stiga vegna peningaleysis og ég vildi ekki svindla fyrir hann og þannig endaði þetta allt saman.

Niðurstaðan:
Ekki gera krakkahús nema þið hafið jafn gaman að því og ég að sjá fólk deyja í þessum leik :)