Ég hef gert nokkrar manneskjur í hverfið mitt því að ég gefst alltaf uppá fólkinu mínu.
Einu sinni bjó ég til tvær vinkonur og lét þær búa saman. Ég hélt partý og þær sofnuðu báðar á gólfinu. ég vakti þær og lét þær fara í sundlaugina þar sem allt fólkið var og önnur konan druknaði þar sem hún sofnaði í sundlauginni.
Hin konan var orðin svo leiðinleg og var í svo leiðinlegri margra tíma vinnu að það var ekkert gaman ég rétt svo náði að láta hana sofa og borða áður en hún færi aftur í vinnuna.
Þá bjó ég til fjölskildu með konu kalli stelpu og strák. Bæði börnin skrópuðu í skólanum og fóru í herinn. Konan dó í eldsvoða og ég lét kallinn minn fá 5 hunda og 2 ketti og nú hugsar hann bara um þau.
Þá bjó ég til einn kall og hann varð alveg rosalega skotinn í konu sem hataði hann. Hann hélt partý og leiðinleg kona fór að reyna við hann. Kallinn varð svo niðurdreginn að ég keypti handa honum hund og lét hann flytja í flottara hús. Þá gleymdi ég að setja síma í húsið og það kviknaði í og bæði kallinn og hundurinn drápust. Ég bjó þá til tvo krakka og enga foreldra og þau drápust því að þau gátu bara borðað snakk(sem kemur úr ískáp).
Svo mér gengur ekki svo vel í leiknum.
Ég elskaig