Það er þannig að strax þegar ég byrjaði í leiknum fór ég í
dýrabúðina og keypti hund, ég valdi sérstaklega cute-look á
hann. En málið er að hann er alveg óskaplega heimskur :D
Hann er með ekkert í smart og hann fer oft að sofa beint fyrir
utan kofan hjá sér :D En hann hefur gert mig gjaldþrota, það er
reyndar ekki honum að kenna en ég verð alltaf að kaupa það
besta fyrir hann og leik við hann á fullu. Þetta leiðir til þess að ég
sleppi því að mæta í vinnuna og ég verð rekinn. Svo strax þegar
ég fæ pening fer ég beint útí bæ og kaupi hundanammi handa
honum. Það er bara þannig að ég get ekki verið leiðinlegur við
hann, og hann heldur því áfram að pissa á gólfið. En mér líður
alltaf vel þegar honum líður vel :)