Hæhæ kæru simsarar :)
Nú er kominn tími til að gera aðra tilraun í að halda keppni hér á milli ykkar sem stunda huga.is/sims.
Þetta verður svipað og áður, þið sendið skilaboð til mín og gæsamamma til að skrá ykkur. Frestur til að skrá sig í keppnina er 1 dec.
Frestur til að skila inn myndum af húsunum ykkar er 15 dec.
Svona verður þetta : Þið megið downloada öllu því dóti sem ykkur sýnist, en alls ekki senda inn hús sem þið hafið downloadað tilbúið.
Í unleashed eru mörg tilbúin hús í hverfunum, og þau eru að sjálfsögðu ekki tekin til greina, þessi hús verða að vera frumbyggð.
Þið takið myndir af húsinu ykkar, og sendir mér þær í emaili.
Af gefnu tilefni vil ég taka nokkur atriði fram :
Ég ætla að biðja ykkur um að vera ekki að skrá ykkur nema að þið ætlið að taka þátt.
Það er ekkert aldurstakmark í keppninni, hver sem er má taka þátt.
Þegar þið skráið ykkur, vinsamlegast sendið skilaboðin til mín OG gæsamamma, ekki annað hvort okkar, þetta kemur í veg fyrir misskilning, þannig það verður á hreinu hver hefur skráð sig.
Það sama gildir um myndirnar af húsinu, sendið þær til okkar beggja, mjög mikilvægt, svo við sjáum bæði ábyggilega allar myndirnar.
Þegar þið eruð búin að skrá ykkur með því að senda okkur skilaboð, þá birtum við emailin okkar, og frekari upplýsingar, ef þess er þörf.
Verum nú duglegri að taka þátt núna heldur enn síðast!! :)

Simskveðjur,
betababe ;)
Before you criticize someone you should walk a mile in their shoes…