Ágætu gestir á Star Trek á Huga.is.
Vinsamleg ábending til þeirra sem senda inn myndir, að ekki senda inn myndir sem skemma fyrir öðrum. Þeir sem hafa fylgst með Voyager í sjónvarpinu, gætu fengið vægt sjokk af og til vegna þess að þeir hafa ekki séð þá þætti sem sumir eru að senda myndir úr. Málið er að RÚV var búið með 4 season af Voyager og ekki meir. Hins vegar hafa menn verið að senda inn myndir úr 6 og 7 season sem innhalda MJÖG mikla spoilera. Passið ykkur því þegar þið sendið inn myndir.