Jæja Sci-Fi unnendur. Ferlið er byrjað.

Ég er búinn að setja inn Sci-Fi aðdáenda vikunnar og var það hann Skyzo sem bauð sig fram í að vera fyrstur þar og vill ég hvetja ykkur öll til að senda mér hugaskilaboð og vera aðdáandi vikunnar. Því að þó að við stjórnendur viljum hefja okkur upp þá væri hugi ekkert án notendanna.

Meira er á leiðinni svo bíðiði spennt.

Sci-Fi er í 63. sæti yfir fléttingar á áhugamálum á eftir græjum, jazzi og köttum. Þetta ætlum við að bæta og vill ég koma okkur eins hátt og við mögulega getum!

Einnig ef þið hafið einhverjar hugmyndir um breytingar á áhugamálinu ekki hika við að hafa samband við mig eða Steina varðandi það.