Teal'C Teal'C (Christopher Judge) í Stargate SG1. Hann er uppáhalds persónan mín í SG1. Ég held alltaf upp á þá sem eru sérstakastir, Data í Next Generation, 7of9 í Voyager, Odo í DS9. Teal´C þessi er, fyrir þá sem ekki vita, Jaffa sem áður var í þjónustu Apophis (sem er goa-uld). Hann er á móti goa-uldunum og sveik Apophis og gekk til liðs við Menn. Hann er eins og aðrir Jaffar hýsill fyrir goa-uld lirfu sem er um leið ónæmiskerfi hans. Veran hefur aftur á móti enga aðra stjórn á honum. Og nú er þetta frekar efni í grein en myndalýsingu.