Fyrir þá sem hafa misst af umræðunni á MMORPG áhugamálinu bendi ég á að íslenskt PA (=klan/guild) hefur verið stofnað fyrir Star Wars Galaxies.

Aðsetur þess er að <a href="http://crymogaea.starwars.is/">Crymogaea.StarWars.is</a> og þar eru líflegar umræður komnar í gang á Forums, bæði public og private.

Private umræðurnar eru fyrir meðlimi Crymogaea, eins og er þarf bara að skrá sig inn á forumið og setja inn beiðni á viðeigandi þráð (Umsóknir) og þá er þér hleypt inn í hið allra heilagasta.

SWG verður fyrsti MMORPG leikurinn sem ég ætla mér að spila, ég er smá StarWars aðdáandi en ekkert huge fan, en það að geta komist inn í sjálfan StarWars heiminn og átt samskipti við tugþúsundir manna um allan heim þar í gegn hljómar bara of vel til að sleppa því!<br><br>–
Summum ius summa inuria
Summum ius summa inuria