Það hefur verið mjög skringilega staðið að stöðu hækkunum í voyager. Fyrst þegar serían byrjaði voru B'elanna, Tuvok og Tom lautinantar svo í þriðju seríu var Tuvok hækkaður uppí lautinant commander, en hvorki B'elanna né Tom voru hækkuð um tign, og í fimmtu seríu þá var Tom lækkaður um tign, í gegnum seríunar hafa Tom og B'elanna gert mikklu meira fyrir skipið heldur en Tuvok, þannig að það ætti að vera búið að hækka þau bæði um tign. En það skrítnasta er með Harry Kim hann byrjaði sem Ensign, og er það en eftir allt sem hann hefur gert. Hann hefur örugglega gert meira fyrir skipið ein Tom og B'elanna til samans.
Er ég sá eini sem sér eitthvað skrítið við þetta eða eru það fleiri þarna úti?