Lokaþátturinn af VOY verður á sunnudaginn kemur kl. 17:05 samkvæmt textavarpinu (<a href="http://www.textavarp.is/210/01.html">http://www.textavarp.is/210/01.html</a>) og engar beinar útsendingar eru þann daginn til að raska því.

Það er aftur á móti alveg ófyrirgefanlegt að RÚV skuli fresta VOY vegna seinkana á landsmóti hestamanna. Landsmótið fékk einungis tíma til kl. 16 og hafði engan rétt á framlengingu. Sérstaklega þar sem þetta er engan veginn sjónvarpsefni í beina útsendingu. Athugið að ég hef ekkert á móti Landsmótinu sem sjónvarpsefni en það gengur ekki í beina útsendingu.

Útlit er fyrir að Enterprise verði á þriðjudögum í október þannig að miklu minna ætti að verða af seinkunum/frestunum þá.