Eins langt og ég man eftir að vera trekkari þá man ég líka eftir því hvað fólk hefur sífellt verið að bera saman Star Trek og Star Wars ! Sérstaklega núna þegar að verið er að gefa út nýju myndirnar.
Í fyrsta lagi þá er það ekki hægt, munurinn er svo rosa mikill, bæði söguþráðurinn, heimarnir sem þetta á að gerast í svo ekki sé gleymt þeirri staðreynd að trekkið er aðalega sjónvarpsefni ( ásamt auðvitað þessum 10 bíómyndum ) en Star Wars er bara myndir.
Í öðru lagi þá skil ég ekki þessa brennandi þörf hjá sumum að vera sífellt að bera eitthvað saman, ég hef gaman af Star Trek og Star Wars ( og öllu space sci-fi að undanskildu Lost in Space ) svo þegar að fólk “ Hvort finnst þér betra Star Trek eða Star Wars ” þá einfaldlega hristi ég hausinn og hlæ innra með mér.
En er ég eini trekkarinn sem þarf að þola þetta eða eru fleiri þjáningabræður mínir þarna eitthvers staðar ?

Kveðja
Lancelot