Jæja, þá kom að því að Odo fékk gestahlutverk í Enterprise og verð ég að segja að þeir hefðu betur sturtað þessum þætti niður um klósettið. Fannst ég vera að horfa á eitthvað allt annað en Star Trek og að hafa Rene í þessu hlutverki var jafn asnalegt og ef Patrick Stewart fengi hlutverk vonda kallsins.
Rene talaði nákvæmlega eins og Odo í þessum þætti, með svona ráma, töff rödd sem einkenndi hann, og eyðilagði það þáttinn alveg.
Ég gef honum svona 1 1/2 stjörnu af 5.