Ég veit að þetta hefur ekkert með star trek að gera. Ég bara vissi ekki hvar annarstaðar ég ætti að pósta þessu. Fannst líklegast að einhver hérna vissi eitthvað um þetta.

Árið 1981 bjó BBC til mini seriuna The Hitchhikers Guide to the Galaxy. Sem er að sjálfsögðu gerð eftir bók Douglas Adams, The Hitchhikers Guide to the Galaxy sem var gerð eftir útvarpsþáttunum, The Hitchhikers Guide to the Galaxy. Núna er ég mikill aðdáandi bókanna og mig langar alveg ofsalega að sjá þessa sjónvarpsþætti. Veit einhver hér hvort að það sé hægt að leigja þetta einhverstaðar hér á landi.