Mikið ofboðslega er gaman þegar mikið er að gerast í Star Trek heiminum. Í dag er verið að gera nýja bíómynd, ný þáttaröð er hafin á loft, RÚV heldur áfram að sýna Voyager á sunnudögum (að vanda), Stöð 2 er með Star Trek þema á mánudögum, Paramount er að fara að gefa út TNG á DVD (og hver veit hvað mun fylgja í kjölfarið… DS9, Voyager, Enterprise (og vonandi region 2 útgáfa af TOS). Pælið í hvað við erum heppin! :)