Ég hef oft séð kannanir á netinu um hvaða startrek skip sé svalast, og alltaf kemur það mér jafn mikið á óvart að Voyager og Enterprise-E fá svona svipað mörg atkvæði. Þegar persónulega finnst mér það engin spurning. Þó Voyager er flottari en flest skipin sem komu á undan, og hafi verið fríkkað soldið í nýrri þáttum, er það engu að síður minna, kassaðara og (að mínu mati yfirleitt bara ljótara). Meina hvenær hefur Voyager jafnast á við Enterprise í First Contact þarna alveg í byrjuninni, ég efast um að startrek, eða nokkur annar vísindaskáldskapur, hafi komið með flottara og tignarlegra skip.

Auðvitað er þetta smekksmál, en endilega þið sem álítið Voyager flottari, sannfærið mig, hvað er svona flott við þetta skip?
Betur sjá augu en eyru