Já ég var að klára að horfa á þátt 11 í fimmtu seríu af Stargate Atlantis, og var að velta fyrir mér hvort einhver annar hérna væri búin/n að sjá hann og hvað ykkur þætti um hann.

Persónulega fannst mér hann mjög skemmtilegur, og gaman að sjá að þeir, eða The Asgard eins og þeir eru betur þekktir, væru ekki jafn dánir og við héldum:)

Það hefur ekki verið mjög mikil eða bara engin umræða um þættina uppá síðkastið, að ég ákvað að skella þessum þræði inn.

Takk fyrir, og endilega segið hvað ykkur fannst.
Amroth Palantír Elensar