Jæja, loksins er Enterprise að fara að byrja á Sky One en það verður á morgun klukkan 20:00.
Ég er búin að vera að bíða og bíða eftir þessu þar sem ég hef engan veginn getað nálgast þættina á netinu.

En auðvitað er þetta alveg perfect timing því ég er loksins að fara að flytja alveg að heiman og hef ekki Sky One í nýja pleisinu. Djöfullinn!!! Ég verð sem sé að fara í heimsókn öll mánudagskvöld ef ég vil horfa á Enterprise. Þá er bara að vona að þessir þættir séu góðir!

Ég verð að viðurkenna að ég er farin að hlakka andskoti mikið til að fara í heimsókn annað kvöld ;)