Ég hef séð smá misskilning koma upp á korknum þar sem nokkrir dagskrárliðir, þar á meðal Star Trek: Voyager hafa lent á milli síðna 201 og 202 og margir því haldið að Voyager verði ekki í dag og næsta sunnudag.
Ég ætlaði bara að láta alla vita af því að Voyager verður á sínum stað, kl. 17:00 alla sunnudaga næstu mánuði. Fyrir utan eitt skipti, 3. febrúar, en þá verður honum flýtt til 16:00 vegna EM í handbolta.