Hvernig væri ef þeir hafa upplýsingar um DVD og VHS útgáfurnar af nýju enterprise þáttunum, mundu gefa það upp hvar maður getur leigt þættina eða keypt þá, því þar sem að ég er dedicated trekkie þá nægir mér ekki að horfa á einn þátt í viku. Ég veit hvað þið eruð að hugsa núna, af hverju tek ég ekki upp þættina og horfi á þá 10 sinnum í viku? Búinn að því, það fullnægir einfaldlega ekki “the crawing”. Er hægt að kaupa þetta einhverstaðar á DVD eða VHS spyr ég. Ég er búinn að horfa á Broken Bow og ég er að segja ykkur það, þessir þættir eru bara snild, argasta snild segi ég. Þeir eru með það allt sem hina þættina vantaði og voru þeir samt bara brilliant. Ég hvet alla til að horfa á þessa þætti og verða fyrir sömu guðlegu reynslu og ég varð fyrir.

Með jólakveðjum til allra. Feigi “Trekkie nr.1”
Þeir tala lang mest…sem geta ekkert.