Sáuð þið auglýsinguna frá Stöð 2 í mogganum síðasta sunnudag? (gæti hafa verið í fleiri blöðum, en ég sá bara moggann)
Þeir voru með vitlausa mynd við TESB (Jabba og Leia í bikiníinu) og svo var kvótið úr ANH þýtt vitlaust.
“Commander, tear this ship apart until you find those plans. And bring me the passengers. I wan't them alive”
Var þýtt sem:
“Hershöfðingi, þú sprengir þetta skip í loft upp og hættir ekki leit fyrr en þessar áætlanir eru fundnar! Og færðu mér farþegana á lífi.”

Ég var að vonast til þess að Stöð 2 myndi sýna smá metnað í kringum þessar myndir, þannig að ég vona að þetta sé ekki það sem koma skal.