Ég ætla mér ekki að vera með neina spoilera hér, bara spurja hvað ykkur finnst um þessa þætti sem nú eru komnir.
Mér fannst Broken Bow fara mjög vel, það var ekki gert of mikið úr skipinu eins og í “Encounter at Farpoint” þar sem skipið var látið fara Warp 9.3 og photon torpedoes og alles. Þarna kynnstumst við crewinu mjög rólega og ekki anað út í neitt mikið.

Í Fight or Flight var söguþráðurinn mjög góður og allar persónur mjög vel leiknar og fengum að kynnast öllum mun betur.