Jæja ég var að horfa á Battlestar Galactica um helgina og í rauninni var ég ekkert orðinn svo spenntur fyrir byrjunni á þriðju seríunni. En ég vissi að það væri að byggja upp eitthvað magnað. Og það var meira og betra en magnað þetta var eitt helsta móment í sögu battlestar galactica!

Öll árásin á cylons á New caprica var bara svo falleg, allt frá byrjunni með sprengjunum og svo þegar pegasus keyrði í basestar og drap þannig þrjár Basestars áður en það féll. Ég var hoppandi útum allt og öskrandi með þegar þetta var.

Og svo fékk ég bara tár í augun þegar ég sá Galactica falla niður í andrúmsloftið og hleypa svo raptors út. Á meðan Raptors voru að útrýma öllum cylons sem þeir fundu á jörðu niðri jumpaði galactica burtu nokkrum kílómetrum frá jörðinni.

Þetta var einfaldlega of fallegt!