Ég hef verið að horfa á nýju þættina og er ekki alveg viss hvað á að halda. Þetta virðast vera ágætir þættir og fínir leikarar en ég er ekki alveg hrifin af því tímaskeiði sem þeir gerast á eða þeirri tækni sem er í gangi. Ég fyrir mitt leyti er ekki hrifinn að þeirri hugmynd að skipverjar enterprise séu aumingjar alheimsins og þurfi hjálp frá hinum og þessum til að komast úr klípum. Ekki miskilja mig þetta virðast vera fínir þættir svona eitt og sér enn ekki sem partur af Star Trek.

Ps. Hefur einhver heyrt um að það sé farið að huga að næstu Star trek seríu.
Harm.