Ef ég væri kafteinn á 100 manna Stjörnuskipi myndi ég pottþétt vilja hafa eina stjórnstöð við stólinn minn(þarf ekkert að vera of stór) þar sem ég gæti svissað milli tactical, engineering, flight control og sensors eða allaveganna þessi helstu. Þó ég hefði fullfæra menn við hverja stjórnstöð þá er aldrei að vita nema það líði yfir einhvern eða ég vildi fyrir einhverjum óútskýranlegum ástæðum fljúga skipinu sjálfur eða senda leynisendingu til Læknisins eða bara til öryggis og ánægju.