Sælir/Sælar.

Eins í nokkrum þráðum hér fyrir neðan hefur verið skemmtilegt spjall um Firefly og allskonar hugmyndir sprottið upp.
Meðal þeirra var sú að skora á Skjá Einn til að sýna þættina Firefly í sjónvarpinu.

Þá gerði ég hér einn undirskriftar lista hér á netinu til að fólk gæti skrifað, skoðað og helst af öllu sent vinum og fólki.
Með því að gera þennann undirskriftar lista tók ég mér það bessaleyfi (guð minn góður, tala eins og eld gamall kall?) að kalla okkur Íslensku Brúnjakkana og vona að það verður tekið vel undir það :)

Þá segi ég bara, gangi okkur Íslensku Brúnjökkunum vel og vonum það besta, og ekki gleyma að senda þetta til vina og vandamanna ;)