Í gær sá ég ansi skemmtilegan þátt ú TNG sem heitir “Relics” þarna sjáum við Montgomery “Scotty” Scott koma aftur eftir 75 ár í sendisíu (pattern buffer) sem hafði verið á hring-sjálfsskoðun (a self-diagnostic loop) allan þann tíma og geymst hann þar inni.
Mér fannst þátturinn alveg yndislegur (eins og allir TNG þættir) og gaman að sjá brúnna á Enterprise NCC 1701 aftur ;)
Scotty sem er einn af mínum uppáhalds karakterum stóð sig með príðum og stórgott að sjá gamla kraftaverkamanninn í fullu fjöri.