Eins og þið vitið átti Anakin engan föður, Shmi bara fæddi hann uppúr þurru svo langt sem
einhver vissi. Ég hélt að hann hefði fæðst svona því hann þyrfti einfaldlega að
fæðast til að uppfylla spádóminn um þann sem myndi færa jafnvægi yfir til máttarins, svona líkt og
Jesús fæddist uppúr þurru. En nú eftir að hafa séð þriðju myndina Episode III tel ég að
Palpatine sé óbeint faðir Anakins. Í þriðju myndinni útskýrði Palpatine fyrir Anakin hversu
máttug myrkra hlið máttarins væri, að Sith að nafni Darth Plagues væri svo voldugur að hann
gæti skypað midikloríunum til að skapa líf, Hann kendi lærisveini sínum allt sem hann kunni,
En að lokum drap lærisveinn hans hann. Ég tel að Palpatine hafi verið lærisveinn hanns.

muniði hvað Anakin var með hátt midikloríu count? hann var með hærra midikloríu count en sjálfur Yoda,
og það að Palpatine var strax í episode II farinn að rugla anakin í ríminu í þeim tilgangi að tæla hann.

ég held að Palpatine hafi skapað Anakin úr midikloríum, Ég sé fáein atriði í þessari kenningu sem ég get ekki svarað, en mér finnst þetta annars meika svo rosalega mikið sence
Og það er alveg dagsatt