Það fer aðeins í taugarnar á mér þessi Rósu Ingólfs háttur sem er á “Þáttur vikunnar” kubbnum á forsíðu þessa áhugamáls, þar sem þó nokkuð af efni þáttarins kemur fram.

Mér finnst nóg að sjá hvað þátturinn heitir og númer hvað hann er og vil ekki vita meira um þáttinn fyrr en ég sé hann, þannig verður hann meira spennandi og skemmtilegri.

Það eru þarna tenglar í upplýsingar um þáttinn og í spjall um hann og ætti það að duga þeim sem eru ósammála mér.

Vinsamlegast hafið ekki upplýsingar um efni þátta á forsíðunni.
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: