Ég fór á Star Wars: Revenge of the Sith með vini mínum fyir um einni viku síðan, og þvílík hörmung. Ég get ekki sagt annað en að þessi mynd hafi verið hund leiðinleg. Tónlistin var reyndar ágæt og tæknibrellurnar mjög góðar, en fleira gott get ég ekki sagt um þessa mynd. Meiri hlutinn af myndinni voru bardagar og þess háttar, sem mér finnst bara alls ekki gaman að horfa á. Hvað þá í 3 tíma. Þess má geta að vinur minn sofnaði yfir henni og ef ég hefði sofið einni mínútu styttra nóttunni áður hefði ég stein sofnað. Ég hef reyndar ekki séð gömlu myndirnar fyrir utan episode 1 og 2.
Ég vil taka það fram að þetta eru MÍNAR skoðanir