Enn sem komið er hefur Revenge of the Sith aðeins fengið toppdóma. Á RottenTomatoes er hún t.d. með 100%. Það er þó kannski ekki alveg marktækt, enda ekki komnir það margir dómar, en ætti þó að gefa manni góða hugmynd.

Myndin lofar sem sagt mjög góðu. Ætli við séum að fara að sjá mynd á við Empire Strikes Back? Er Lucas kominn með neistann aftur?