Kæru meðnerðir, dagurinn í dag er gleðidagur fyrir alla StarWars-nerði um heim allan, því að í dag var á StarWars.com tilkynntur titill næstu Star Wars myndar, Episode III. Titillinn er Revenge of the Sith. Margir höfðu þegar giskað á að þessi titill yrði fyrir valinu, og hrósa þeir vafalítið happi af þessu tilefni.

Star Wars-sagan lítur þá svona út:
Episode I: The Phantom Menace
Episode II: Attack of the Clones
Episode III: Revenge of the Sith
Episode IV: A New Hope
Episode V: The Empire Strikes Back
Episode VI: Return of the Jedi

Hægt er að nálgast fréttina í heild sinni hér.



En þetta voru ekki einu fréttirnar sem bárust í dag, því að það var einnig tilkynnt að um vorið 2005 verði gefinn út DVD-diskur sem muni innihalda Clone Wars teiknimyndirnar.