Mér er sama hvort það verður hann eða hún. Það er hinsvegar reynsla mín að í 2/3 tilfella eru sköllóttir kapteinar bestir. Auðvitað ef þetta á hausnum á Janeway er hárkolla þá dettur kenning mín beint á andlitið!

Annars er fullt af kvikmyndastjörnum búnar að demba sér í sjónvarpið. Sheen-feðgar, Rob Lowe, Michael J. Fox o.fl. Maður gæti kannski fengið að sjá Baldwin bróðir (eða bara alla familíuna) sem kaptein, eða kannski John Laroquette. Hann hefur reynslu af að leika klingona með asnaleg nöfn.

Samt held ég að hann Gandolfini aðalleikari úr Sopranos yrði kick-ass kapteinn. Hann þyrfti ekki eini sinni að breyta um karakter… Hei! Fáum bara castið úr Sopranos til að leika Starfleet áhöfn. Það myndi rokka, sérstaklega ef stripperarnir kæmu með. Svona alvöru TOS fílingur! Jafnvel betra; Jesse Ventura! (fylkisstjóri Minnesota, WWF “keppandi”, lék í Predator)

Ég biðst velvirðingar á þessu en ég á bara svo erfitt með að hemja mig þegar ég byrja… :)