Ég er nú enginn rosalegur trekkari en samt nokkuð áhugasamur um þessa þætti og mér finnst gaman að þeim hugmyndum sem settar eru fram fyrir virkni á hinum og þessum framtíðartækjum.

En það hefur alveg farið framhjá mér hvernig þeir láta “replicator” virka, hann getur búið til mat, föt, hluti úr málmi og tré og ýmislegt fleira, en úr hverju býr hann þetta allt til? ekki býr tækið þetta til úr engu?