Mig minnir nú að maður hafi séð feitt fólk í þáttunum öðru hvoru í gegnum tíðina. Þetta voru bara óbreyttir borgarar, ekki Starfleet fólk. Var t.d. ekki mennskur fósturbróðir Worfs frekar þéttur?

Hvað feitt fólk í Starfleet varðar, þá verð ég að segja að mér þykir ekkert nema eðlilegt að stofnun einsog Starfleet geri einhverjar lágmarkskröfur um líkamlega hreysti og form hjá þeim mannskap sem þjónar um borð í skipum sambandsins, þannig að mér þykir ekkert skrítið að lítið hafi sést af slíku.
(\_/)