Er einhver búinn að fá season 2 á DVD? ég pantaði frá Amazon UK 18. maí (preorder) og það var loksins að fara af stað núna í dag. Þetta hefur greinilega selst miklu betur en þeir áttu von á. Sem er náttúrulega ekkert nema gott mál! Verður gaman að fá þennan pakka því það eru margir alveg brilliant þættir í öðru seasoninu! JMS á víst að vera með commentery á tvo þætti og Bruce Boxleitner, Claudia Christian og Jerry Doyle (Sheridan, Ivanova og Garibaldi) á einum þætti. Get ekki ímyndað mér að það verði gáfulegt… :-)