Ég fékk frá Bandaríkjunum Star Wars Episode 2 á DVD um jólin. Ég er búinn að kynna mér diskinn og hann er frábær!!! Myndgæðin sem stafræna kvikmyndatökuvél George Lucas gerðu eru einstök og hljóðið með mestu ágætum. Hann er líka troðfullur af aukaefni, t.d. heimildamyndbönd, atriði o.þ.h. Ég veit ekki alveg hvenær hann kemur út á Íslandi en ég hvet þá sem hafa áhuga að kaupa diskinn! Hann er algjör snilld og er eitthvað sem er “must have”.