ÉG er mikill startrek aðdáandi, ekki svo mikill að ég taki eftir því ef einhver fer með vitlaust tæknimál, en samt það mikill að ég hef horft á þessa þætti síðan ég var lítill, eða síðan RÚV byrjaði að sína Deep Space 9. Og ég verð að segja að mér finnst Rúv hafa gert gott að breyta loks sýningartímanum, Eftilvill er þetta ekkert góður tími fyrir alla, t.d. er ég að vinna á þessum tíma, en við getum þó bókað það að þeir verða sýndir á þessum tíma. Núna meigið þið taka þessa grein og rífa í ykkur, minn punktur er að ég er ánægður að Rúv hafi loks eftir margra ára nöldur, ákveðið að skipta um tíma.

takk
Atli