Star Wars Bounty Hunter er leikur sem kemur út í nóvember á þessu ári og ég ætla mjög svo að festa kaup á þeim leik.

Þú tekur að þér hlutverk sem Bounty Hunterinn Jango Fett,
hættulegasti Bounty Hunter vetrarbrautarinnar og þú átt að elta
uppi forustumann dularfuls félags, dauðann eða lifandi, þú ræður.
Þú þarft að fara í gegnum átján level í sex mismunandi heimum og eru öll levelin full af action. Þú þarft að berjast við marga bífræna bófa, rosalegar skepnur og alla þá sem standa á milli þín og bráðar þinnar sem er dark Jedi. Þessi för mun leiða þig út í myrkrustu horn Star Wars heimsins, þar sem enginn hefur vogað sér að fara en þú ert hinn óttalausi Jango Fett. Þeir sem eru eftirlýstir hafa engan felustað.

Þetta á áræðinlega eftir að verða frábær leikur og hann á að skýra hvers vegna Jango Fett var valinn til að vera mótelið fyrir clone herinn í Attack of the Clones.

Þú átt eftir að sjá hundrað ólika charactera og líka nokkra mjög kunnulega, fullt af vélmennum og einnig stórhættulegann
Krayt Dragon.

Meðal vopna sem verða í leiknum eru wrist-mounted cutting laser, dual blaster pistols, missile-equipped jetpack, flamethrower, toxic darts, sniper rifle, berar hendur og fullt fleira. Tónlistin er náttúrulega samin af John Williams.

Þetta er leikur sem enginn Star Wars og Fett aðdáandi ætti að láta framhjá sér fara.
Íslenska NFL spjallsíðan