Jango Fett, the best bounty hunter in the galaxy. Nafnið Fett hefur tvenna merkingu. Annars vegar merkir það ótta en hins vegar merkir það starfshæfni. Fyrir þá sem ráða hann merkir það árangur, fyrir þá sem hafa ástæðu til að óttast merkir það annað hvort handtöku eða dauða. Nafnið og orðsporið er aðeins tvennt af mörgu sem sonur hans Boba erfði frá föður sínum.
Á sínum síðustu árum naut hann þess heiðurs að vera besti mannaveiðarinn á vetrarbrautinni.

Jango Fett var kom frá plánetunni Concord Dawn og var 1,83 á hæð. Hann var mjög vel vopnaður og var brynvarinn frá toppi til táar. Aðalvopn hans voru tvær blaster pistols
og mikið af földum vopnum sem gátu leynst hvar sem er á brynvörninni hans. Jango Fett var mjög fær leyniskytta og var einnig góður hermaður. Þegar hann var óvopnaður var hann ekki síður banvænni en þegar hann var vopnaður.
Á bakinu hafði hann mjög hagnýtann búnað sem kom mjög vel að gagni í bardaga. Þar voru bæði jetpack sem hann notaði til að komast bæði hærra og hraðar en andstæðingarnir. Þar leyndust einnig explosive rockets sem komu mörgum flóttamönnum á óvart.

Að mínu mati er þetta langflottasti maðurinn í star wars. Það var mjög leiðinlegt að hann var afhausaður. Ég hefði viljað sjá aðeins meira af honum í myndinni.

Með fyrirvara um stafsetningarvillur.
Heimildir: http://www.starwars.com/databank/character/jangofett/index.html
Íslenska NFL spjallsíðan