Hvern hefur ekki dreymt lengi um að eignast bat'leth, vopn klingon stríðsmannanna? Ég bara spyr.

Nýlega kom mynd á forsíðu Star Trek hérna á huga, af alveg mjög flottu handvopni, sem er víst hannað af sama hönnuði og gerði klingon vopnin í Next Generation þáttunum sívinsælu.

Ég fór náttúrulega strax á feiknasprett yfir hóla og hæðir upplýsingahraðbrautarinnar í leit að frekari upplýsingum um þessi vopn og fann on-line verslun með nokkra muni eftir þennan gaur.

Fyrst ber að nefna sjálft bat'leth sverðið en það er 48" langt og kostar hjá þeim 85 dollara
http://store.yahoo.com/majestic/new40batbatf.html


Svo næst kemur The Scorpion á 160 dollara,

http://store.yahoo.com/majestic/scorpion.ht ml


seinast kemur þessi svakalegi Fang og Baelin á 60 dollara

þið getið áttað ykkur á stærðinni út frá handfanginu

http://store.yahoo.com/majestic/fangofbaelin.html



Stóra spurningin er, vinnur einhver hér í tollinum og getur laumað batlethanum í gegn fyrir mig ? :)