Þessi grein er þýdd og endursögð, tekin af www.section31.com/stories/feb-2002/022602_d.shtml

Í viðtali við Cinemascape Online talaði Brannon Braga um hið nýja munúðarfulla Trek sem sést hefur í sumum af nýju [Enterprise] þáttunum.

“Munúð er kynferðisleg spenna. Og það er mikil kynferðisleg spenna milli Trip og T'Pol og Archer og T'Pol.” Sagði Braga í stríðni. “Trip varð óléttur í, var sá þáttur frekar munúðarfullur, við höfum einnig þátt þar sem T'Pol verður klúr með öðrum Vúlkana og er það virkilega kynþokkafullur þáttur.”

"Vonandi mun munúðin verða áfram í þáttunum. Þið munuð sjá fólkið okkar á undifötunum. Þið munuð einnig sjá Archer í sturtu. Það er einnig þáttur þar sem Ferengi yfirtaka skipið og verður Trip á hlaupum um allt skipið á nærfötunum eins og Bruce Willis. Munúð getur verið gamansöm, hún getur verið augljós og hún getur verið hárfín. Við Rick [Berman] höfum fengið leyfi til að sýna tilfinninganæmni okkar sjálfra í þessum þáttum en við máttum það ekki í hinum þáttunum.“

”Við ætlum að halda áfram að fjalla dálítið um Vúlkanska hlutann í þáttunum, en á aðeins öðruvísi hátt.“ Sagði Braga ”Við munum hitta Vúlkana sem eru að reyna að koma tilfinningum inn í líf sitt og mun T'Pol flækjast í þá ruglingslegu sögu um “táldrögun”, nokkurskonar Vúlkönsd 9 og 1/2 vika. … Þetta gæti hljómað einfalt en við reynum að segja bestu mögulegu sögurnar sem hægt er og ætlum ekki að flýta okkur. Okkur finnst þessi áhöfn taka fyrstu skref sín út í Vetrarbrautina og uppgvöta leyndardóma hennar. Og við ætlum einfaldlega að reyna að segja góðar sögur. Það eru margir góðir þættir að koma og við erum mjög ánægðir með þetta."