Mikilvæg STAR WARS EPISODE II ATTACK OF THE CLONES fréttatilkynning frá NEXUS!
——————————————————————————
Eftir að við höfðum verið með fyrstu sölusýninguna á Lord Of The Rings í heimi
þá fórum við að hugsa út í hvort það væri hugsanlegt að toppa aðra eins NEXUS
uppákomu.

Svarið virðist vera, já!

Eftir aðeins TVO daga verðum við þeir FYRSTU með Bandaríkjunum til að bjóða
upp á fyrstu SEX fígúrurnar úr bestu sci-fi mynd allra tíma, STAR WARS EPISODE II
ATTACK OF THE CLONES.

Alger leynd hefur hvílt yfir útliti og heitum á þessum sex ATTACK OF THE CLONES
fígúrum og ekkert um þær hefur lekið út á netið!

Spennan í kringum nýjustu STAR WARS myndina hefur bara stigmagnast dag frá degi
síðan sýnishornin úr henni birtust á netinu. Jango Fett (Boba Fett-Jango Fett???)
er óendanlega svalur, Count Dooku kemur gæsahúðinni í gang. Ef þú tekur það besta
úr útliti myndanna Blade Runner, Gladiator og Empire Strikes Back þá ertu kominn
með smá hugmynd um það stórfenglega sjónarspil sem ATTACK OF THE CLONES mun bjóða
uppá. Útlitið á fígúrunum verður örugglega engin undantekning.

Fyrstur kemur fyrstur fær…
———————————————————————————-