Jæja,

Eftir smá athugasemd á korkinum eftir Atari, þá fór ég að pæla … er Odo maður eða kona.
**
Áður en áfram er haldið … og áður en einhver fer að væla … þá notast ég við orðið maður um karlmann og kona um kvenmann … ekki bögga mig út af því :)
**
Ég man ekki eftir þætti úr DS9 þar sem þetta er tekið fram. Allir hamskiptarnir búa saman í einum stórum hamskiptapolli (the link) og eru einskonar ein heild. Hinsvegar þegar þeir koma úr pollinum og verða einstaklingar, þá taka þeir á sig kyn, sbr. hamskiptadruslan.
Hafa hamskiptingar kyn, eru þeir kynlausir, hvernig fjölga þeir sér, velja þeir sér kyn? Þetta eru allt spurningar sem verðugt er að velta sér uppúr.
Ef þið getið svarað þessu, þá fáum við að sjá hvort að allt sé í felldu með Odo vin okkar …. kannski er hann ekki maður … kannski er hann ekki kona …. kannski er hann bæði!

Kannski ættum við að kjósa um þetta … hvað finnst ykkur!!

Ykkar kexruglaði,
ADM Mundi