Hvernig ég varð Star Wars FAN Ok. Þetta er fyrsta grein mín hér og ég ætla bara að fara að byrja:

Einu dag þegar ég var í leikskólanum ( ég mun örugglega muna þennan atburð þangað til ég dey) þá sá ég og vinir mínir gaurana sem voru 1 ári eldri við í einhverjum leik. Þeir voru að skylmast með trjágreinum og voru með ímyndaðar byssur. Ég og félagar mínir spurðum hvað þeir voru að gera. Þeir sögðu að þeir væru í Star Wars leik. Við félagar fengum að vera með og ég var sterkastur í minni deild fékk ég að leika character að nafni Darth Vader eða á íslensku Svarthöfði. Þegar ég kom heim spurði ég pabba hvort hann vissi hvað Star Wars væri. Hann átti myndinar og leyfði mér að horfa á þær. Þegar ég var búinn að sjá myndirnar ( IV,V,VI) varð ég strax Star Wars sjúkur og næstu daga fór ég út í búð og keypti mér (pabbi borgaði) Star Wars dót. Eftir nokkur ár kom Star Wars EP.1 í bíó og of course fór ég á hana með föður mínum. Næsta skóladag sagði ég skólasystkinum mínum að ég væri búinn að sjá nýju Star Wars myndina og eftir nokkra daga voru allir búnir að sjá hana. Það var komið mikið Star Wars æði í skólanum og í frímínútum voru allir að berjast með prikum. Nokkrum vikum síðar fór ég til frænda míns á Akureyri og hann átti nýjasta Star Wars leikinn sem er reyndar eiginlega sá besti sem ég hef spilað. Þegar önnur myndinn kom fór ég líka á hana og var alltaf meiri Fan þegar ég sá myndinar. Síðan komu Star Wars teiknimyndirnar á Cartoon Network ( og ég held að þættinir séu að koma á íslandi). Ég vildi rosalega mikið að sjá svona Star Wars þátt og vissi bara að hann væri á Laugardögum enn ekki hvenær. Þannig að ég horfði á Cartoon Network í 9 klukkutíma stanslaust og loksins byrjaði þátturinn enn hann var bara í 5 mín. Þetta var svolítið mikil tíma eyðsla enn svona er lífið. Þegar þriðja myndin kom út, sleppti ég Eurovision bara til þess að sjá myndinna. Það er sagt að það ætti að fara gera Star Wars EP.7 og fleiri myndir enn þetta getur alveg verið lygi. Enn allavega vona ég að það verður gert myndir nr. 7,8,9…….. enn þetta er allavega Sagan hvernig ég varð að Star Wars FAN.

Darth Vader is the best Character!!! Do you hear that??? GOOD!!!