Kaylee Frye Kaylee Frye, eða Kaywinnit Lee Frye eins og hún heitir fullu nafni er minn uppáhalds Firefly/Serenity karakter. Með hennar glaðværa hátterni, skemmtilegu athugasemdir og yndislega bros var hún ekki lengi að vinna mig á sitt band!

Kaylee varð að meðlimi áhafnarinnar þegar Serenity var föst á plánetu með bilaða vél. Þáverandi vélvirki gat ekki lagað vélina og fór því á kvennafar. Hann nældi sér í Kaylee eða er í raun hægt að segja að Kaylee nældi sér í hann, því hún vildi ekkert með drenginn hafa, bara fá að skoða vélina! Kaylee hafði nefnilega ástríðu fyrir vélum og hafði sérstaka hæfileika til að vinna með þær. Svo kom til að hún lagaði vél Serenity, Mal (skipstjórinn) rak gamla vélvirkjann og réð Kaylee á staðnum!

Herbergið hennar Kaylee er litríkasti staðurinn á Serenity, hún hefur glætt bera veggi skipsins lífi með jólaljósum og ámáluðum blómum. Þetta lýsir best fasi Kaylee sem er ávallt glöð, jafnvel þegar hún er í lífshættu! Hjá henni er glasið alltaf hálffullt! Kaylee hefur einnig tekið sig til og málað nokkur blóm í matsalnum.

Þegar áhöfninni á Serenity vantar pening verður ýmist fyrir valinu glæpir eða að taka upp farþega, það fyrra er þó vinsælla hjá þeim enda gefur það meira af sér. En stundum verða þau að vera lögleg líka. Í eitt skiptið taka þau upp ungan lækni, Simon Tam. Neistar byrja strax að fljúga milli Kaylee og Simon en aldrei ná þau saman, er það þá helst vegna stéttarmunar. Ein athugasemd Simon um útnáralíf fór mikið fyrir brjóstið á Kaylee og spurði hún hann ef hann liti svona niður á það, hvað gæti honum þá fundist um þá sem völdu sér það líf.
Just ask yourself: WWCD!