Ég hef það skemmtilega hlutskipti að skipta um skoðanakannanir hér á Star Trek síðunni. Þess vegna langar mig til þess að spyrja ykkur um hvaða skoðanakannanir þið viljið sjá hér, hversu oft þær eiga að vera og hvort þið hafið verið ánægð með þær hingað til. Ég hef reynt að hafa þær vikulega, en stundum hefur þetta dregist aðeins á langinn. Síðan væri náttúrulega gaman að fá einhver heit umræðumál inn á korkinn. Sem minnir mig á það … viljið þið fá fleiri korka?? Þ.e.a.s. Almennt um Star Trek, Star Trek: Þættir, Star Trek: Myndir o.s.frv., eða hafa þetta bara áfram undir Almennt um Star Trek?? Kveðjur, AdminMundu